Kokkurinn Ógurlegi

ATH, NÝ BLOGGSÍÐA

janúar 10, 2007 · 1 ummæli

ÉG ER BÚINN AÐ GERA NÝJA BLOGGSÍÐU OG SLÓÐIN Á HANA ER

http://blog.central.is/hemmidk 

VILJIÐ ÞIÐ VERA SVO VÆN, ÞIÐ YKKAR SEM ÉG ER LINKAÐUR VIРAÐ BREYTA LINKNUM ÞANNIG AÐ FÓLK KOMI INN Á NÝJU SÍÐUNA.

FYRIRFRAM ÞAKKIR,  KOKKURINN ÓGURLEGI

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

Bloggið!!!!

janúar 8, 2007 · Rita ummæli

Þá er þessi helgi afstaðin og ný vinnuvika hafin, ég átti allveg svakalega fína helgi, föstudagskvöldið fór í það að hamfletta rjúpur, var að gera það í fyrsta skiptið, Deddi bróðir var mér ynnan handar enda vanur maður þar á ferð, gekk þetta allveg ágætlega verð ég að segja miðað við fyrsta skipti. 

Á laugardeginum fengum við svo tengdó+ömmu og afa Birnu í Rjúpnaveislu sem ég hafði útbúið, mikið svakalega var þetta gott, mmmmmmm!!! Verður allveg án efa fastur liður um hverja hátíð héðan í frá. 

Á sunnudeginum sváfum við lengi og fórum svo uppí hesthús rétt eftir hádegi, þar tók ég hann Emil minn á hestbak, hélt á honum fyrir framan mig og riðum við nokkra hringi inni í reiðhöllinni hanns Helga fasteignasala og var minn drengur heldur rogginn með sig og hafði gaman af, svo áttum við gott og rólegt kvöld og gláptum á ymbann!!!! 

Hafið það gott þangað til næst vinir og allir hinir!!!!

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

“Magni, Magni, Magni!!!”

janúar 5, 2007 · 4 Ummæli

Ég vil ekki trúa því sem ég var að heyra, ég var að heyra að hann Magni okkar úr Rockstar hefði yfirgefið konu sína og barn og væri tekinn saman við Dilönu, ég bara varð allveg kjaftstop þegar ég heyrði þetta og vona svo sannarlega ennþá að þetta sé bara lygi, en því miður skilst mér að það séu nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir þessu því miður, endilega segið mér í commenti ef þið vitið eitthvað eða hafið heyrt eitthvað meira um þetta og vonandi getið þið sagt mér að þetta sé í raun ósatt, vil nefnilega helst ekki trúa þessu, hafið það gott vinir og allir hinir.

→ 4 CommentsFlokkar: Uncategorized

Allt að verða eins og það var!!!!

janúar 4, 2007 · Rita ummæli

Jæja þá er þetta allt að komast á rétt ról eftir hátíðirnar, hversdagurinn hafinn á ný og er það bara gott að mörgu leyti, ég sló persónulegt met í gærkvöldi, skokkaði í klukkutíma og þrjúkorter,  svaka góður hringur, en hvað um það merkilega mikið að gera í vinnunni strax, reiknaði reyndar með smá rólegheitum í veislunum og fyrirspurnum þeim tengdum en það er ekki þannig, sem betur fer, þá líður tíminn hjá manni, ég er að fara á hestbak á eftir, er að fara að þjálfa hestinn hanns tengdapabba næstu vikurnar þar sem tengdapabbi er hælbrotinn og losnar ekki við gifsið fyrr en eftir mánuð, á laugardaginn(þrettándanum) ætlum við svo að borða Rjúpur, ég og Birna, pabbi hennar og mamma, bróðir hennar og amma hennar og afi, hlakka ekkert smá til, langt síðan ég hef fengið Rjúpu, ætla að fá hann Dedda bróðir til að hjálpa mér að hamfletta þær á morgun, hef nefnilega aldrei gert slíkt, verð að læra það, rífa þær úr kápunni, hafið það gott þangað til næst allir mínir vinir og allir hinir!!!

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

Saddam líflátinn!!!

janúar 2, 2007 · 1 ummæli

það sem hér er sýnt er ekki fyrir alla að skoða, hugsaðu þig um áður en þú skoðar þetta kæri lesandi, 

Bannað börnum og viðkvæmum sálum

www.b2.is/?sida=tengill&id=208665

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

Gleðilegt ár!!!

janúar 2, 2007 · 2 Ummæli

Gleðilegt ár kæru vinir og allir hinir sem lesa bloggið mitt, mikið rosalega var gaman hjá mér og mínum yfir hátíðirnar, mikið borðað af góðum mat og náðum við hápunkti glæsileikans á gamlárskvöld þar sem matseðillinn var steikarþrenna, Dádýralundir, Nautalundir og Kengúrusteik, með þessu gerði ég villisveppasoðsósu smakkaða til með smá rjóma og purt, dessertinn hjá okkur var Creme Brule með skógarberjasósu og ferskum jarðarberjum, alger snylld, en ég náði takmarki mínu sem var að þyngjast ekki yfir hátíðarnar,(Jíhahh) og er það í fyrsta sinn sem það gerist í mínu lífi, og var það ekki átakalaust sem það gekk fyrir sig en með samstilltu átaki hugar og líkama fór hlunkurinn út að hlaupa með reglulegu millibili yfir hátíðirnar og er næsta takmark mitt að halda því áfram á nýja árinu, hvernig sem það á eftir að ganga þá er það takmark mitt, bið ykkur að spyrja mig endilega hvernig hlaupamálum sé háttað hjá mér næst þegar þið hittið mig eða heyrið í mér eða bara með commentum á síðunni, verð að ná þyngdartölunni minni niður um svona 10 kg í fyrstu umferð og væri gott að það gerðist fyrir sumarið, en annars allt gott af mér og mínum að frétta.  bið að heilsa ykkur þangað til næst!!!

→ 2 CommentsFlokkar: Uncategorized

Hún á afmæli í dag!!!

desember 28, 2006 · 4 Ummæli

Það var á þessum degi fyrir 25 árum að hún Birna mín leit dagsins ljós í fyrsta sinn,  Ynnilega til hamingju með daginn elskan!!! Knús og kossar verða að bíða þangað til ég kem heim úr vinnuni!!!

→ 4 CommentsFlokkar: Uncategorized

“Grand Rudolph”

desember 28, 2006 · Rita ummæli

Fyrir 4 til 6 pers

Hráefni:

2 stk filet af hreindýri                                                                                                                           5-6 greinar Garðablóðberg
ca 30 Rifsber
ca 10 stk Einiber
ca 2 msk ferkst Rósmarín 
ca 1 kg kartöflur

Sósa.
Þurrkaðir Villisveppir(1 poki)
1-2 skallottulaukur
1 1/2 dl púrtvín
3 dl villibráðarsoð (hægt að nota Nautasoð frá úrvals og bæta smá villibráðarkrafti út í )
1-3 dl rjómi
títuberjarsulta (2-3 teskeiðar)
gráðostur (smávegis, smakka sósuna til)

Eplasalat

2 stk epli græn
2 dl rjómi
ca 2 stilka sellerí
dass sykur
vínber
ca 2 msk möndlur

Aðferð: 

Kjötið Brúnað á pönnu og kryddað með salti og pipar restin af kryddinu er sett á pönnuna. Kjötið er sett í eldfast mót, ca 5-6 greinar af garðablóðbergi er sétt í kringum og ofaná kjötið. Rósmarínið er sétt í mótið ásamt rifsberjum og einiberjum. (Best er að setja kjötið inni í ofninn í ca 50-60 mín, (kjarnhiti 54) Setjið inn í  80-90° heitan ofninn. Látið svo kjötið standa í 10 mín áður en það er skorið.

Setjið sveppina í bleyti. Saxið laukinn mjög smátt og steikið í olíu, hellið púrtvíni og soði saman við og sjóðið niður um helming setjið sveppina saman við ásamt rjómanum, sjóðið mjög rólega í ca 5 mín og kryddið með salti og pipar. Gott er að láta sósuna standa í svona ca 10-15 mín til að fá meiri kraft úr sveppunum. Áður en sósan er borin fram er hún hituð aftur upp, setjið þá sultu og gráðost saman við eftir smekk og smakkið til. Þykkið með maisenamjöli ef vill.

Rjóminn léttþeyttur,selleríið er skorið mjög smátt niður í sneiðar. Vínberin eru skorin í tvennt og steinhreinsuð. Eplin eru skorin niður smátt, öllu er blandað saman og sett í kæli.

Kartöflur eru skornar niður í teningar og steiktar upp úr olíu og kryddaðar með garðablóðbergi, salti og pipar.

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

Jólin búin, svaka líður þetta hratt!!!

desember 27, 2006 · 3 Ummæli

Mikið svakalega líður þessi tími hratt, jólin svo að segja búin og mér finnst þau varla hafin, en góð voru þau, og náði ég settu takmarki að þyngjast ekki yfir jólin, hingað til að minnsta kosti, fór út að hlaupa á aðfanagadag í klukkutímaskokk, jóladag í ca hálftíma og annan jóladag klukkutíma og tuttugu mínútur, og er ég bara stoltur af sjálfum mér, við fengum annars mjög friðsamleg jól með vinum og ættingjum, fengum svaka fínar gjafir og ber þar hæst videó-cameru sem við fengum frá tegdó, svaka flotta Canon græju, svo fékk ég legghlífar fyrir gönguskóna mína, ullarundirfatnað fyrir fjallgöngurnar þannig að nú er það bara að ganga á fjöll, “these boots are made for walking” svo fékk ég afmælistónleika Bubba Mortens á diskum, danska mynd sem heitir Adams æbler, svaka fyndin mynd, bók sem heitir “Með lífið að láni” og eitt og annað skemmtilegt, núna er það bara vinna í 3 daga, og svo löng helgi aftur, er þetta ekki nice? hefði samt viljað vera í fríi í dag og fara með Emil og Birnu á jólaball Frímúrara í Hafnarfirði sem fram fer í dag, en það er ekki á allt kosið, fannst ég ekki geta vælt það út, svona er ég linur stundum, en þetta er allt í þessu besta samt, hef ekki yfir neinu að kvarta.  Hafið það gott vinir og allir hinir!!!

→ 3 CommentsFlokkar: Uncategorized

Það eru að koma jól!!

desember 21, 2006 · Rita ummæli

Það er að 21 des, korter í jól, allt snar-snælduvitlaust að gera og lífið er fallegt, það er gaman að sjá hvað allt er að ganga upp hjá okkur hérna í vinnunni, gjafakörfur pakkaðar og sérpakkaðar í þúsundatali og allt virðist vera að ganga upp, ég hef bara ekki haft neinn tíma aflögu til bloggs síðustu daga og ástæðan er vegna mikilla anna, en ég fæ nú samt smá jólaskap í mig þegar ég kem heim á kvöldin, í gærkvöldi skrifaði ég nokkur jólakort og hlustaði á KK og Ellen syngja jólalög af sinni alkunnu snylld, í dag er samkvæmt almannakinu sólstöður, frá og með deginum í dag fer daginn að lengja aftur, þannig að það er bara bjart framundan, allavega lýt ég björtum augum til komandi tíma, hafið það gott kæru vinir og allir hinir og passiði nú uppá hvort annað og látið ykkur líða vel

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized